Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

Að vera ég – með öðrum

Getur verið að það sé tilgangur með því að fæðast inn í jarðlífið og upplifa aftur og aftur aðstæður þar sem við lærum smám saman að yfirgefa okkur sjálf? Að upplifa tilfinningalegt óöryggi sem barn og unglingur og taka síðan sömu mynstrin með okkur inn í fullorðinsárin?

Við förum jafnvel inn í hjónaband án þess að vita hver við raunverulega erum. Við sækjum kannski þangað til þess að finna einhvers konar öryggi. Þar sem við upplifum ekki öryggi hið innra eigum við erfitt með að setja mörk og týnum okkur sjálfum inn í drauma og langanir annarra. Við eigum það til að flæða inn í aðra og verða þannig óánægð með það sem við höfum eins og það sé ekki okkar. Sennilega er það ein birtingarmynd þess að yfirgefa okkur sjálf. Einu skiptin sem við erum virkilega við sjálf eru kannski þegar við erum ein einhvers staðar og þá helst úti í náttúrunni.

Hin seinni ár hefur togað sterkt í mig að kaupa mér lítið hús lengst úti í sveit, helst þar sem er fámennt. Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju þessi löngun hefur verið svona sterk. Ég er ekki svo viss um að það snúist um að vilja vera fjarri fólki. Það er miklu frekar að þar væri ég ein með sjálfri mér og væri ekki að flæða inn í langanir, væntingar eða líðan annarra. Þar er ég einfaldlega ég.

Áherslurnar hafa auðvitað aðeins breyst eftir því sem árin líða og núna, eftir að ég komst á eftirlaunaaldurinn, hef ég hugsað hvort það væri ekki betra að nokkrir byggju í húsum hlið við hlið, bæði vegna félagsskapar og til þess að hafa einhvers konar samhjálp og öryggisnet.

Því sannleikurinn er sá að mig langar ekkert til að einangra mig frá fólki. Það er stór þáttur í mér sem elskar að vera í kringum fólk og hafa gaman með öðrum. Ég elska að hitta fólk, heyra í fólki, kynnast nýju fólki og vita af því að eitthvað sé að gerast sem nærir mig og gleður í samveru með öðrum.

Eftir því sem ég skoða þetta meira þá snýst þetta meira um að komast á þann stað að vera ég sjálf í hvaða aðstæðum sem ég er í þá stundina.

Af hverju ætti ég ekki að geta verið ég sjálf í kringum annað fólk? Get ég tekið þessa tilfinningu sem ég finn ein úti í náttúrunni með mér inn í samskipti við annað fólk? Get ég verið jafn mikið ég sjálf innan um fullt af ólíku fólki, af ólíkum uppruna, með ólíkar skoðanir og ólíka reynslu, án þess að yfirgefa sjálfa mig með því að flæða inn í aðra.
Ég held að það sé einmitt orðið eitt af markmiðum mínum þessa dagana.

Ég elska fjölskylduna mína, vini og kunningja og ég elska líka að kynnast nýju fólki. Allt þetta hef ég haft í lífinu mínu hingað til.

Meirihluta ævinnar hef ég unnið á mjög fjölmennum vinnustað í vaktavinnu þar sem fólk var að koma og fara alla daga. Ég hitti nýtt fólk nánast daglega og ég elskaði það. Aðra umgekkst maður árum saman og við vinnufélagarnir vorum orðin eins og fjölskylda. Við deildum saman gleði og sorg og þekktumst orðið mjög vel. Fyrir þessa vinnufélaga er ég endalaust þakklát.

Endurhæfingin var auðvitað að vissu leyti verndaður vinnustaður. Þar var fólk af ólíkum uppruna, með ólíka sögu og á ólíkum stað í lífinu, en ákveðinn grunnur var samt til staðar. Fólk var þar til að hjálpa og styðja og reyndi almennt að koma vel fram hvert við annað.

Þarna gat ég verið nokkurn veginn ég sjálf, þó að ég hafi kannski komið meira út úr skápnum, ef svo má segja, í því hver ég er eftir að ég hætti að vinna.

Í fyrstu, þegar ég var að vinna á svona fjölmennum vinnustað, týndi ég sjálfri mér samt dálítið mikið. Ég var ekki að fullu með orkuna mína til staðar í líkamanum heldur alltaf einhvern veginn fyrir utan hann. Þannig var ég að skynja alls konar orku annarra meira.

Það hefur samt alltaf verið einhvers konar vörn fyrir mig að fara ekki inn í að skynja orku þeirra sem voru í endurhæfingarferli. Ég tók þá meðvituðu ákvörðun að loka ekki orkunni minni heldur leyfa því orkuflæði sem þurfti og vildi flæða að flæða.

Auðvitað voru margar aðrar heilandi hendur annarra starfsfélaga minna á þessum vinnustað þannig að þar magnaðist alveg gríðarleg heilunarorka. Næmnin var því ekki að trufla mig þannig að ég færi inn í orku hvers einasta einstaklings sem ég var í návist við og var að aðstoða.

Reyndar lít ég á það þannig að þó að það líti út á yfirborðinu eins og ég sé að aðstoða einhvern líkamlega, þá gæti hann allt eins verið að aðstoða mig.

Þannig að þegar öllu er á botnin hvolft þá er þetta í raun ekki um að þurfa að velja á milli þess að vera ein úti í náttúrunni eða vera innan um fólk. Heldur um að finna stöðugleika hið innra, vera til staðar hér og nú sama hvar ég er og hverjir eru í kringum mig.

Að geta einfaldlega notið þess að vera ég sjálf og elska mig nógu mikið til þess að standa með mér í einu og öllu.


 

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir hafa samband