|
Þegar enginn bað um álit
18. september 2026
Hvað skal segja um það sem ég ætla að tala um í þessum pistli?
Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja, en kannski byrja ég bara á því að segja frá því að í sumar hef ég verið dugleg að stunda ræktina og sund til þess að liðka og létta á líkamanum. Meðal annars vegna þess að hnén og bakið hafa verið að bera meiri byrðar en styrkur þeirra og geta ráða vel við.
Einhver móttþrói hefur verið í þessu ferli að léttast þar sem ég hef nokkrum sinnum í sumar snúið á mér annað hnéð þannig að ég hef ekki geta stundað æfingar í nokkra daga og stundum vikur. En síðustu fjóra daga hef ég farið í ræktina til að styrkja mig og einnig verið dugleg að gera æfingar og teygja. Líkamanum mínum veitti svo sannarlega ekki af því að fá loksins athygli eftir að ég hef veitt öllu og öllum öðrum athygli nánast alla ævina. Hann er vel að því kominn að nú sé komið að honum.
Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvort ég hafi yfirleitt lést við allar þessar æfingar. En ég hef allavega styrkst og eitthvað hefur látið á sjá ef ég miða við fötin mín.
Það sem ég ætlaði aftur á móti að segja frá gerðist í dag.
Eftir ræktina, þegar mér leið bara nokkuð vel bæði andlega og líkamlega, rölti ég yfir í næstu götu. Þar eru sölubásar með ýmsum varningi og margt hægt að skoða og spá í ef viljinn er fyrir hendi.
Ég var nýkomin inn og hafði kannski skoðað tvo sölubása þegar ég kom að konu sem var að selja vörur frá fyrirtæki sem ég þekki og á meira að segja eina tegund af vörum frá. Ég sagði henni það.
Hún leit á mig og fór að segja mér frá annarri vöru frá fyrirtækinu sem gerði meira en það sem stæði á umbúðunum. Aukabónusinn væri sá að hún hjálpaði fólki að grennast.
„Sjáðu bara,“ sagði hún og benti á magann á sér. „Ég er búin að léttast um sjö kíló.“
Ég hafði ekki spurt um megrun. Ég hafði ekki sagst vilja léttast. Ég hafði í rauninni ekki sagt neitt sem leiddi af þessu samtali. Ég þakkaði henni fyrir og gekk í burtu. Ekki reið, bara hissa.
Þarna hafði ég fengið alveg óumbeðin skilaboð um líkama minn: Þú þarft að grennast. Og, heppin þú, hér á borðinu hjá mér er einmitt það sem þú þarft.
Takk fyrir, takk.
Af hverju dettur okkur yfirleitt í hug að horfa á aðra manneskju, meta líkama hennar út frá útlitinu og ákveða síðan fyrir hana hvað hún þurfi að gera við hann?
Ég er reyndar eldri en tvævetur þegar kemur að þessum málum. Ég hef prófað nánast allt þegar kemur að því að grennast, nema að láta minnka á mér magann eða sprauta mig með lyfi sem notað er við sykursýki. Hvorugt hefur hugnast mér, þótt læknir hafi einu sinni bent mér á þann möguleika. Það var líklega fyrir tveimur árum og ég sagðist ætla að hugsa málið.
Ég hugsaði það.
Og komst að þeirri niðurstöðu að ég vildi ekki fara út í inngrip í líkama minn þegar ég vissi ekki hvaða áhrif það gæti haft á mig til lengri tíma.
Það sem hefur hins vegar oft hjálpað mér þegar ég hef átt erfitt með að hemja mig í mat er að ég hef alla tíð verið dugleg að hreyfa mig. Ég hef gengið endalaust og flest ár farið í ræktina, að minnsta kosti yfir vetrartímann.
Uppákoman í dag minnti mig á annað atvik.
Eitt árið, þegar ég var enn bóndi og bjó í sveitinni, hafði ég gengið með vinkonu minni á hverju einasta kvöldi allan veturinn, sama hvernig viðraði. Um vorið fór ég svo að hjóla. Ég var orðin mjög dugleg og farin að hjóla langar vegalengdir.
Í einum slíkum hjólatúr hitti ég bónda í sveitinni. Hann fór að tala um hvað ég væri dugleg að hjóla og spurði hvort ég væri að reyna að grenna mig.
Svo sagði hann allt í einu:
„Já, þú verður alltaf feit.“
Ég hætti samtalinu og fór.
Þessi orð slógu mig. Seinna sagði ég öðrum frá þessu og gat jafnvel hlegið að vitleysunni í manninum, en einhvers staðar fann ég samt að orðin höfðu komist inn fyrir varnirnar. Þau höfðu hitt mig.
Ég er ekki að segja að orð hans hafi orðið einhver álög. Ég ber ábyrgð á mínu lífi og mínum ákvörðunum. En orð hafa áhrif.
Sérstaklega orð sem hitta fyrir stað þar sem við erum viðkvæm fyrir.
Ég fann til dæmis að eftir þetta langaði mig ekki eins mikið til að hjóla á þessum slóðum.
Og kannski er það einmitt það sem mér finnst merkilegast við þetta.
Þarna var manneskja að gera eitthvað fyrir sjálfa sig. Hún var úti að hjóla, hreyfa sig, styrkja líkamann og glöð að njóta þess að vera úti. En í stað þess að það fengi einfaldlega að vera þannig kom einhver annar og setti dóm á líkama hennar: Þú verður alltaf svona.
Ef hann hefði verið að tala við manneskju sem hefði átt í erfiðleikum með áfengi og væri að leggja sig fram um að breyta lífi sínu, hefði honum þá dottið í hug að segja við hana: „Þú verður hvort sem er alltaf fyllibytta, svo þú skalt ekkert vera að hafa fyrir því að reyna“?
Auðvitað væri það særandi og niðurbrjótandi. En hvað var þá öðruvísi við að segja við mig, þar sem ég var úti að hjóla og leggja mig fram um að hugsa vel um líkama minn: „Þú verður alltaf feit“?
Orð skipta máli. Við vitum aldrei hvaða baráttu manneskjan fyrir framan okkur er að há eða hversu mikið hún hefur lagt á sig til að komast þangað sem hún er.
Efst á síðu
Ýmislegt
Heim
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir hafa samband |
|