|
|
Þegar orka hoppar á milli staða
Mig hefur oft langað að skrifa um það að veikindum alls konar fylgir orka. Þetta er ekki bara að fá kvef, það er orka sem hoppar á milli fólks. Grænir slímkallar.
Nei, ég segi svona.
Ég veit til dæmis ekki hvernig þessi orka lítur út þegar um kvef er að ræða. Hún er virkilega til staðar, ekki bara bakteríur og veirur sem hægt er að greina. Litlum veikindum fylgir orka sem hefur ekki mikla fyrirferð, ef svo má segja, en miklum veikindum fylgja oft stór orkuform.
Það fylgir líka orka alls konar tilfinningum. Sumir kalla þetta implönt, á meðan ég sé þetta frekar sem tilfinningaorkubolta sem eru tilbúnir að umbreytast þegar þeir birtast eða sýna sig á einhvern hátt. Það eru vissulega líka til implönt græjur sem hefur verið komið fyrir í orkukerfi og líkama fólks, en það er allt annars eðlis. Ekki meira um það að sinni.
Það sem hefur komið mér skemmtilegast á óvart var einmitt þegar orka fórnarlambsins þurfti að yfirgefa mig. Blessað fórnarlambið.
En ég ætlaði að tala um alls konar orku, til dæmis það sem ég kalla orku fórnarlambsins.
Ég hef áður skrifað um þessa reynslu og man ekkert hvernig sá texti var, þannig að ég skrifa þetta bara aftur.
Ég fer oft sjálf í heilun og hef upplifað alls konar. Þegar ég fer í heilun er ég algjörlega meðvituð um að ég vil umbreyta öllu sem hægt er að umbreyta í orkunni minni. Oft eru ákveðnir undanfara þess að ég fari í heilun. Þá hefur eitthvað komið upp sem minnir á þá orku sem er á leiðinni út.
Ég man allavega að áður en ég fór í þessa tilteknu heilun hafði ég verið mjög meðvituð um að alls konar uppákomur í lífinu virtust reyna að fá mig til þess að næra orku fórnarlambsins. Þar sem ég tók eftir gömlu orkumynstrunum og leikjunum sem þeim fylgdu ákvað ég að næra þau ekki og fara ekki inn í þá leiki.
Og viti menn, haldið þið ekki að orkan í heilu lagi hafi poppað út úr líkamanum og hoppað á heilarann!
Búmm.
Við fórum í eltingaleik. Ég þurfti að losa orkuna af henni og þá hoppaði hún út í hornin á herberginu. Eins og Barbabrella. Við gátum elt hana fram og til baka um stund.
Í eitt skiptið gekk ég síðan inn í þessa orku. Hún var orðin svo stór, enda hafði ég nært hana samviskusamlega að ég, sem er rétt rúmir 1,60 m á hæð, gat gengið inn í hana. Þótt hátt væri til lofts náði hún alveg upp í loft og niður þar sem ég stóð.
Og hvað upplifði ég þegar ég gekk inn í hana?
Jú, ég upplifði hlýju eða hita, eins og orkan væri aðeins heitari en loftið í herberginu. Síðan upplifði ég hana sem afskaplega góða en sorgmædda. Og hvað haldið þið að viðbrögð mín hafi verið? Þarna kom greinilega einhver annar þáttur eða orka í mér til sögunnar og ég sárvorkenndi henni.
Það var svo merkileg að geta svo gengið út úr þessari orku. Þá kólnaði aftur og ég fann ekki lengur tilfinninguna sem orkan bar með sér. Ég prófaði nokkrum sinnum að ganga inn og út um þessa orku bara til að prófa en líka til að reyna að fá hana til að yfirgefa svæði.
Að lokum hættum við að reyna að elta hana. Sú sem var með heilunina gat hins vegar ekki notað herbergið í tvo heila daga á eftir.
Það þurfti að hafa töluvert fyrir því að koma henni út. Takk fyrir, takk.
Orka fórnalambsins var sem sagt ekkert alveg á því að yfirgefa sviðið svo auðveldlega.
Efst á síðu
Ýmislegt
Heim
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
|