Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Sálarljósið vakið

Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa um þann óskilyrta kærleika sem býr innra með okkur hverju og einu er sennilega Venusarafmælishátíðin mín og þeirra sem hafa Venus í Vog eða Sporðdreka.

Óskilyrt ást býr innra með okkur öllum. Eins og ég sé það þá er það sálarkjarninn okkar. Sumir sjá sálarkjarnann í enninu, aðrir aðeins fyrir ofan líkamann og svo enn aðrir í hjartanu. Mér finnst best að finna fyrir honum í hjartanu. Þannig get ég hugsað meðvitað um að dreifa ljósi sálarinnar út í allan líkamann og út í orkuhjúpana. Þannig minni ég mig á það hver ég er sem ljósvera.

Þessi óskilyrta ást sem við höfum öll innra með okkur getur verið nokkuð falin fyrir tilfinningum eða alls konar hulum, eins og sumir lýsa þessu. Flestir hafa einhvern eða eitthvað í kringum sig sem getur vakið þessa óskilyrtu ást innra með þeim.

Börnin geta svo sannarlega vakið þessa kærleiksvitund innra með okkur og minnt okkur á hver við sannarlega erum. Óskilyrt ást, hreinn kærleikskjarni. Það er svo auðvelt að elska börn, hvort sem það eru okkar eigin eða annarra.

Ef fólk dregst ekki að maka eða eignast börn um ævina, hvað vekur þá þennan óskilyrta kærleika með þeim? Jú, það eru t.d. börn annarra, vegna þess að stundum eru í stórfjölskyldum eða vinahópum börn sem umgangast viðkomandi af einhverjum ástæðum. Við finnum hvernig kærleikurinn magnast upp innra með okkur þegar við höldum á litlum börnum eða erum í kringum lítil börn.

Þau vekja og minna okkur á það hver við erum og við vekjum þau og þannig minnum við þau líka á hver þau eru, því börnin gleyma því smám saman hver þau eru í hita tilfinninganna.

Þá eru það dýrin. Við getum fengið að hafa dýr í okkar umsjón eða umgengist dýr og þau eru svo sannarlega óskilyrt ást. Þau minna okkur á og að horfa t.d. í augun á heimilishundinum eða kettinum og finna þessa óskilyrtu ást sem geislar í augunum á þeim kveikir strax þennan neista.

Fólk sem er á sínum erfiðustu stundum, annaðhvort veikt eða hefur lent í slysi, vekur líka þessa sálarkjarnavitund innra með okkur. Við mildumst flest í návist þeirra og finnum til kærleikans innra með okkur.

Þannig að þeir sem sinna fólki á einhvern hátt eru í raun að læra að finna samúðina og kærleikann til annarra og um leið að vekja sitt eigið sálarljós innra með sér og fá meira að segja borgað fyrir það.

Það er auðvitað gagnkvæmt eins og allt annað. Ef kærleiksvitundin er vakin innra með einum þá vekur hún þessa vitund innra með öðrum. Það gerist allavega mjög oft.

Það sem vekur náttúrulega flesta og oftast er náttúran sem heilar, nærir og hleður okkur af orku. Hún er eins og alsnægtaborð alheimsins: „Það er bara, hvað viltu? Gjörðu svo vel.“

Dásamlegt sólarlag getur verið á við margar meðferðir. Að sitja við foss og horfa á og skynja kraftinn, kærleikann og fegurðina er eins og endurhleðsla á batteríinu. Þakklæti, núvitund, friður.

Það þarf ekki að fara langt til að upplifa náttúruna, að minnsta kosti ekki hér á landi.
Það sem vekur líka sálarkjarnann okkar hið innra er sköpun, öll sköpun sem veitir okkur ánægju og gleði.

Skapaðu og þú ert í snertingu við sálarljósið þitt.

Sköpun er ekki bara að vera listamanneskja. Það er líka að smíða, stunda garðyrkju, elda góðan mat, breyta til heima hjá sér, taka ljósmyndir, prjóna sokka, taka til og þannig mætti lengi telja. Hver og einn finnur sína leið í því sem veitir ánægju og gleði við að skapa.

Ef við deilum svo með öðrum þeirri sköpun sem við gerðum í gleði og ánægjublissi, þá verður sköpunin til þess að vekja þennan kraft innra með öðrum. Þegar þú ert búin að taka til þá líður þér og öðrum vel á heimilinu. Þegar þú hefur ánægju af því að breyta til heima hjá þér, þó það sé ekki nema að færa til hluti, þá er sú sköpun líka eitthvað sem vekur upp breytingar hjá heimilisfólki og þeim sem koma inn á heimilið.

Þú málar mynd eða gerir aðra listsköpun og deilir henni með öðrum. Aðrir lesa orkuna í sköpuninni þinni, oftast ómeðvitað, og laðast að henni eða ekki.

Ég fer til dæmis í ákveðið gleðibliss við að vera í náttúrunni að ljósmynda og svo deili ég myndum, t.d. með ykkur á Facebook. Þannig vekja myndirnar mínar mér margfalda gleði og ánægju í hjartanu. Ég deili gleðinni sem ég upplifði við myndatökuna og einnig færi ég ykkur um leið alsnægtarorkuna sem hin guðlega orka móður jarðar, náttúruandanna og hið heilaga samspil þess alls við manneskjuna gefa okkur.

Ég upplifði skrítna hluti um daginn þegar ég var að taka vídeó á símann minn við fossinn Faxa. Það er hægt að ganga mjög nálægt honum, þannig að það er hægt nánast að vera inni í honum með aðdrætti á myndavél símans.

Allt í einu sá ég stillingu á myndavél símans sem gerir manni kleift að taka mynd á hægum hraða. Þegar ég fór að horfa á upptökuna af fossinum fann ég að ég hafði breytt ritmanum í náttúrunni með þessu og ég fann frekar erfiða orku í maganum. Þá breytti ég aftur og byrjaði að horfa á fossinn í eðlilegu flæði og þá kom aftur þessi eðlilega vellíðunartilfinning yfir mig.

Þessari hægahraðamynd hefði mér aldrei dottið í hug að deila með ykkur. Hún hefði vakið frekar óþægilega tilfinningu innra með ykkur eins og mér.

Þannig að já, náttúran hefur ákveðinn ritma sem er gerður af mikilli nákvæmni til þess að okkur líði vel.

 

 

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir joninath@viskaoggledi.is