Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 


Skrifin sem leið að sjálfri mér

21. septmeber 2026

Það að skrifa um tilfinningatengd efni út frá sjálfri sér krefst ákveðins hugrekkis, vegna þess að oftar en ekki er ég að fara inn í mjög djúpa skömm eða sektarkennd sem ég hef lengi haldið einungis fyrir mig. Þegar ég fer inn í slíkar tilfinningar og tjái þær fer af stað ákveðið ferli í líkamanum sem ég upplifi sem orkulosun.

Þegar þetta gerist þarf ég að vera meðvituð um að gera eitthvað sem jarðtengir mig. Ég fer til dæmis út í náttúruna, sem ég geri mjög oft. Stundum þarf ég hreinlega að borða kjöt eða franskar kartöflur vegna þess að ég upplifi að slíkur matur jarðtengi mig líka.

Eftir á finn ég fyrir ákveðnum létti og meiri skilningi, en líka þreytu. Þess vegna get ég oft aðeins skrifað hægt eða lítið í einu.

Eins og ég sé þetta mynstur núna leysti ég ekki úr þeim áföllum sem ég varð fyrir sem barn með því að tjá mig. Í staðinn fór athyglin inn á við og upp í höfuðið. Orkan fór þangað og ég reyndi að hugsa mig að lausninni með alls kyns ráðum. Þannig missti ég líka smám saman jarðtenginguna og hugurinn fór sífellt meira á yfirsnúning.

Ef ég lenti í einhverju erfiðu eða einhver særði mig fór ákveðið ferli af stað í huganum. Hann hugsaði málið fram og til baka og endurtók sama hringinn 300 sinnum eða meira. Jafnvel heilu næturnar fóru í að leyfa huganum að yfirtaka og rangla með mig fram og til baka.

Það var ekki fyrr en ég fór að skrifa niður á blað það sem hugurinn var að hringla með að ég fór að ná einhverjum tökum á þessu. Ég skrifaði og skrifaði allt sem hann vildi segja og auðvitað kom að því að hann var kominn í hring. Þá gat ég sagt: „Sjáðu, hugur, þú ert búinn að segja mér þetta allt áður. Af hverju ætlar þú að segja mér þetta aftur og aftur?“ Það slær á hugsanirnar að gera þetta. Það er svolítið eins og að afvopna hugann.

Við vitum nú að endurtekin hugsun getur styrkt ákveðin taugabrautamynstur í heilanum. Hjá mér hafði hugurinn beinlínis verið í þjálfun frá unga aldri við að reyna að leysa erfið samskipti með innra tali. Ég var mjög dul og hélt alls kyns sársauka innra með mér, enda hafði ég engan til að tjá mig við um það sem setti mig úr jafnvægi.

Þannig fór hugsanavélin í höfðinu af stað og athygli mín fór smám saman að beinast meira að öðru fólki en mér sjálfri. Ég fór í raun að flýja það sem skipti máli. Ég átti líklega ekki kost á öðru á þeim tíma, eða kunni einfaldlega ekki að takast á við það með öðrum hætti.

Þegar maður fer stöðugt með athyglina upp í höfuðið upplifi ég það þannig að orkan fylgi þangað og mikilvægur neðri hluti líkamans verði út undan. Þannig missum við jarðtenginguna.

Það sem ég gerði oft á seinni árum, þegar ég fór loksins að tjá mig um alls kyns erfið samskipti, var að tala um þau við aðra. Þá var talað og talað og smám saman var ég orðin heimsins mesta fórnarlamb. Mér fannst ég þurfa að finna einhvers konar réttlæti með því að tala illa um aðra, vera með skens og skot sem særðu og jafnvel það sem mætti kalla hatur. Ég gat orðið öfundsjúk og fundið fyrir vanmáttarkennd ef einhver virtist fallegri, betri, ríkari eða hvað sem það nú var.

Vanmáttarkenndin gagnvart sjálfri mér var komin alveg niður í dýpstu holu.
Þannig hélt þetta áfram þangað til árið 1999 að ég rakst á miðlaðan texta á netinu frá konu sem þá bjó í Ástralíu. Miðillinn hét Margaret McElroy og sú vitund sem hún miðlaði hefur verið nefndur Maitreya.

Þessi bréf hjálpuðu mér að sjá lífið frá allt öðru sjónarhorni. Þar var sú hugmynd sett fram að við komum inn í jarðlífið til þess að takast á við ákveðin verkefni og að við veljum sjálf, á sálarstigi, ákveðin viðfangsefni áður en við fæðumst. Ég sé það þannig að ákveðin samvinna eigi sér stað milli okkar sjálfra sem sálar og leiðbeinenda okkar, þar sem stjörnukortið og þau lífsverkefni sem við ætlum okkur að takast á við í jarðlífinu eru sett saman.

Stjörnukortið verður þannig eins konar kort yfir þá reynslu, áskoranir og möguleika sem við höfum valið okkur áður en við fæðumst.

Stundum tökum við að okkur meira en við hreinlega getum höndlað þegar við erum komin inn í líkama á jörðinni. Þá getur lífið virst hræðilega ósanngjarnt og vissulega lítur það oft þannig út en samkvæmt þessari sýn höfum við sjálf valið ákveðin viðfangsefni áður en við komum hingað og þar á meðal þau erfiðu. En við höfum líka alltaf eitthvað einhverja hjálp, hæfileika og jákvæða þætti.

Stjörnukortið og lestur þess á dýpri sviðum var nóg til þess að opna augu mín fyrir því að ég gæti horft á eigin lífsbraut með öðrum hætti.

Með Satúrnus í fyrsta húsi gat ég til dæmis séð að ég hefði ákveðið. „Já, ég ætla að takast á við erfiða æsku. Ég ætla að upplifa nokkurs konar einelti. Ég ætla að eiga erfið unglingsár. Svo, þegar líður á ævina, fer eitthvað að breytast. Á seinni hluta ævinnar fæ ég tækifæri til að umbreyta öllum þessum sársauka, reiði og gremju í nokkurs konar gull eða dýrmæti.“

Sárið verður að dýrmæti vegna þess að ég öðlast skilning á því hvers vegna ég gekk þá lífsbraut sem ég gekk. Hún kenndi mér svo margt. Hún þroskaði mig og ég á örugglega eftir að læra margt nýtt um sjálfa mig á meðan ég er hér í jarðlífinu.

Það var líka mikil uppgötvun fyrir mig að lesa Eckhart Tolle og hugmyndir hans um sársaukalíkamann. Ég skildi það þannig að þeir sem bera mikinn sársauka geti átt möguleika á að umbreyta honum í mikið ljós þegar þeir hætta að næra sársaukalíkamann með alls kyns ráðum og læra þess í stað að vera með sársaukanum, finna hann og skoða hvað liggur að baki honum.

Þegar ég fór loksins að æfa mig í því að snúa mér að sjálfri mér þegar ég varð reið eða pirruð og spyrja hvað innra með mér hefði orðið fyrir áhrifum, fór athyglin smám saman af öðrum og yfir á það sem var að malla innra með mér sjálfri.

Öll þessi ár hafði hugurinn haldið mér svo upptekinni að ég komst eiginlega aldrei að kjarnanum, að rótinni. Það gerðist ekki fyrr en ég fór markvisst að skoða sjálfa mig og tjá það sem ég fann með skrifuðum orðum.

Þannig hef ég lært svo rosalega margt og öðlast svo mikinn skilning að þið getið ekki trúað því.

Skrif eru svo dýrmæt.

Það er samt ekki þar með sagt að ég sé komin á þann stað að hugurinn fari aldrei aftur á flug og taki marga hringi ef ég lendi í einhvers konar uppákomum. Það gerist enn. En ég hef lært ýmislegt til þess að stöðva hann.

Til dæmis segi ég stundum við hann:
„Heyrðu, núna er nótt og ég þarf að sofa. Ég get hvort sem er ekkert gert í þessu nákvæmlega núna. Við skulum bara sjá hvernig við leysum þetta á morgun.“

Þannig tala ég við hugann.



   

 

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir joninath@viskaoggledi.is