Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

Viðbrögð áfalla


Ég hef verið að fá það svolítið til mín undan farna daga hvort ofurnæmi eða ofurskynjun geti að einhverju leyti verið afleiðing margra áfalla.

Með ofurnæmi á ég við þegar þú skynjar nánast allt í umhverfinu og í orku fólks í kringum þig. Þú ert stöðugt að nema stemningu, líðan og breytingar í umhverfinu og jafnvel það sem aðrir virðast ekki taka eftir.

Þegar þessi næmni verður mikil getur hún upplifast sem stingandi orka og/eða mikil þreyta. Þú ert stöðugt að reyna að verja þig fyrir umhverfinu vegna þess að þú finnur svo mikið, skynjar svo mikið.

Getur líkaminn og taugakerfið hafa lært að lesa umhverfið, svipbrigði, raddblæ, stemningu og minnstu breytingar til þess að vera viðbúin því versta sem gæti gerst? Skynjunin getur orðið eins og taugakerfið liggi utan á líkamanum.

Og getur það sem við síðar köllum ofurnæmi stundum hafa byrjað sem leið til að lifa af?

Getur þetta sama líka gerst með hugann?

Eftir mörg áföll getur hugurinn orðið eins og hann sé stöðugt á varðbergi. Hann reynir að leysa úr öllu, sjá fyrir hvað gæti gerst og vera tilbúinn EF eitthvað skyldi koma upp á. Hugsanirnar fara þá endalaust í hringi: Hvað ef þetta gerist? Hvað á ég þá að gera? Hvernig get ég komið í veg fyrir það?

Eins og ég upplifi þetta verður einhvers konar orkulegur aðskilnaður frá líkamanum og orkan verður að mestu leyti bundin við höfuðið. Hugurinn reynir stöðugt að skilgreina, skilja, stjórna og finna lausnir. Forðast aðstæður eða forða sér úr þeim. Þessi eðlilega öryggistilfinning, að finnast maður sé öruggur hvar og hvenær sem er með öðru fólki. Ekki bara einn með sjálfum sér eða úti í náttúrunni.

Ég veit ekki hvort þetta gætu verið tvær hliðar á sama mynstri: Skynjunin er stöðugt að leita að einhverju í umhverfinu sem gæti verið hættulegt og hugurinn er stöðugt að reyna að finna lausn á því áður en það gerist.

Líkaminn fær aldrei almennilega þau skilaboð að allt sé öruggt. Nú máttu slaka á. Þannig að orkan nái að setjast alveg inn í báðar hliðar líkamans alveg niður í tær.
Þegar maður hefur verið svona alla tíð gæti þetta líka orðið nokkurs konar skyggnigáfa að skilja hvernig fólki líður alveg frá A-Ö og hvernig orkan færist fram og til baka um líkamann í heilun.

Annað sem ég hef verið að velta pínulítið fyrir mér í framhaldi af þessu er hversu margir sem fara andlegu leiðina leiðast á einhverjum tímapunkti í þá átt að vilja frekar vera í samskiptum við og í orku þeirra sem tilheyra andlega heiminum en þeirra sem eru í hinum efnislega.

Fólk dregur sig kannski inn í sinn eigin heim, einmitt vegna næmni sinnar og skynjunar á orku, og fer eiginlega á kaf í það sem við köllum andlegt.

Stundum getur ákafinn orðið svo mikill í að sækja í þessa kærleiksríku og upplýsandi orku og þekkingu andans heimsins að farið er yfir einhverja hárfína línu. Jarðtengingin tapast og í verstu tilfellum getur manneskjan misst tengslin við þann veruleika sem hún lifir í.

Þetta þekki ég af eigin raun. Ég fór nákvæmlega þessa leið þegar ég fór að skrifa ósjálfráða skrift árið 2004. Ég sótti svo stíft í einhvers konar orkulega vellíðan og gætti alls ekki að jarðtengingu á þeim tíma. Ég fór yfir þessa línu og endaði í geðrofi. Það tók mig langan tíma að komast aftur til baka og til þess þurfti ég meðal annars hjálp lyfja.

Þessi reynsla kenndi mér svo sannarlega að enginn er ósnertanlegan í þessum málum og því ætti alltaf að fara varlega þegar orka er annars vegar. Það er svo mikilvægt að gleyma ekki hvers vegna við erum hér í líkama.

Við erum ekki komin í þetta líf til þess að lifa í helli eða klaustri, einangruð frá heiminum. Við erum hér til þess að lifa lífinu, með öllum þeim margvíslegu upplifunum sem það býður upp á.

Fyrir mér snýst andlega leiðin ekki lengur um að komast sem lengst frá hinu efnislega, heldur að finna hina guðdómlegu kærleiksvitund sem við raunverulega erum og geta lifað hana á sem dýpsta máta með því að halda okkur jarðtengdum í hversdagslegu lífi.

Að vera í fullri meðvitund og vel jarðtengd, með orkuna alveg niður í líkamann og niður í tær og þar með í sterkari tengingu við það guðlega í okkur og öllu sem er.

 

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir hafa samband