Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Æðra sjálfið - lægra sjálfið

 

15. janúar 2007

Skilaboð frá  Maitreya - miðlað af Margaret McElroy

Það getur reynst erfitt að greina á milli æðra sjálfsins og lægra sjálfsins þegar maður er á andlegri braut. Lægra sjálfið, sem oft er nefnt egó, er þó meira en bara það. Í gegnum tíðina hefur lægra sjálfið þróað með sér hæfileikann til að smjúga inn á svið hugans þar sem ótti, efi, óöryggi og sársauki liggur. Það heldur fast í þessar tilfinningar og bíður þar til þið reynið að stíga út fyrir þægindarammann, þá grípur það inn í, líkt og snákur sem bíður eftir bráð sinni.

Mörgum reynist erfitt að átta sig á hvenær lægra sjálfið er að verki, því það getur blekkt ykkur og látið ykkur halda að það sé æðra sjálfið. Það er oftast einungis kennari í hárri orkutíðni eða sá sem les orku sem getur greint lægra sjálfið í allri sinni dýrð. Algengast er að það birtist í formi ótta. Sjálfið er óttinn, það þolir ekki breytingar – það vill halda fast í hið þekkta og þægilega. Það forðast sannleikann, af ótta við að valda uppnámi, og heldur ykkur föstum í vanamynstrum árum saman. Æðra sjálfið, hins vegar, leiðbeinir ykkur alltaf í rétta átt – á vegferðinni sem þið hafið valið sem hluta af ykkar andlegu þroskaleið. Sjálfið reynir hins vegar að halda ykkur föstum í óttanum.

Þið eruð kannski ekki meðvituð um að stundum er nauðsynlegt að valda öðrum sárindum til þess að þeir geti þroskast. Vegna þess að þið lærið í gegnum sársauka. Kennari getur sagt nemanda sínum sannleika sem nemandanum finnst óþægilegur, en það gerir honum kleift að vaxa og losa sig við gamalt munstur. Í okkar heimi reynum við að styðja ykkur í gegnum miðla, drauma og hugleiðslur, en lægra sjálfið grípur oft inn í með því að skapa ótta.

Mörgum gengur illa að vera sjálfum sér samkvæmir á andlegu leiðinni. Þið lifið oft í sjálfsblekkingu, forðist að takast á við þær áskoranir sem þurfa til að halda áfram í þroska og hljóta þá hamingju sem þið eigið rétt á. Þegar þið komið aftur til okkar heims, sjáið þið hvað þið létuð hjá líða að gera og óskið þess að þið hefðuð tekið aðrar ákvarðanir, því það getur þýtt enn einn hringinn í endurfæðingarhringrásinni til að læra sömu lexíu.

Reynið að greina á milli lægra og æðra sjálfsins. Reynið að fylgja lífsáætlun ykkar eins vel og þið getið. Látið ekki ótta, hvorki ykkar eigin né annarra, né ótta við breytingar, stöðva ykkur í að halda áfram. Þegar þið hafið náð að sigrast á þessu og látið ekki lægra sjálfið stjórna, getur æðra sjálfið fengið að leiða ykkur í átt að hæsta tilgangi ykkar og aðstoðað ykkur við að uppfylla lífsáætlunina.



Maitreya.

 

 

Kennsla Maitreya

Efst á síðu

Heim

Beint á síðu http://maitreya.co

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur