Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gangrýni á aðra

 

4. Október 2003

Skilaboð frá Maitreya -miðlað af Margaret McElroy

Hversu gagnrýnin/n ert þú? Ertu ein af þeim sálum sem ert alltaf að dæma aðra? Finnst þér að þú ein/n hafir öll svörin? Er gagnrýnin þín sprottin af öfund, reiði eða gremju gagnvart lífinu eða því sem aðrir eru að gera? Ef svo er, þá verður þú að hreinsa þessa neikvæðu orku úr lífi þínu til þess að halda áfram á andlegu leiðinni. Þetta þarf ekki að vera flókið – þú getur einfaldlega tekið eitt skref í einu og unnið á hverri áskorun fyrir sig. Margar sálir reyna að takast á við allt í einu, en raunverulegar framfarir verða með því að einbeita sér að einu máli í senn.

Sannur meistari dæmir ekki aðra sál. Hann skilur að allt er hluti af karma, lexíum og aðstæðum á hverjum tíma. Í stað þess að beina sjónum að öðrum, einbeitir meistari sér að eigin ófullkomleika og vinnur með sjálfan sig áður en hann reynir að hjálpa öðrum. Hversu margar klukkustundir á dag eyðir þú í óánægju? Veistu að þér er ekki ætlað að vera óhamingjusöm/óhamingjusamur? Þú ert skapari þíns eigin raunveruleika, en oft leyfir lægra sjálfið þér ekki að sjá í gegnum blekkinguna. Í raun ert þú leikari í leikritinu þínu, og allar sálir sem koma inn í líf þitt eru líka leikarar í þessari sýningu.

Þegar þú hækkar tíðni þína, þá verður þú meðvitaðri um þessar blekkingar. Um leið og þú nærð því, þá öðlast þú hæfileikann til að sleppa takinu af þessum blekkingum.

Þið spyrjið mig oft: „Hvernig get ég hækkað tíðni mína?“ Og svarið er að þú þarft að beina athyglinni að þínum eigin lífsáætlunum, lærdómi og þeim villum sem þú hefur gert, jafnvel í fyrri lífum. Þegar þú nærð að gera þetta, getur þú haldið áfram að verða sú sál sem þér er ætlað að vera og lifað því lífi sem þú áttir að lifa.


Maitreya.

 

Efst á síðu

Kennsla Maitreya

Heim

 

Beint á síðu http://maitreya.co

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur