Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Jarðarnám sálar

 

Maitreya - miðlað af Margaret McElory

Hinn guðlegi andi hefur gefið sálum frjálsan vilja, sem gerir það ómögulegt að stjórna þeim — sálin þarf að hafa val. Hins vegar getur val einstaklings hindrað þroska sálarinnar og, ásamt sjálfinu, haldið henni fastri í hringrás endurfæðinga. Á endanum mun sálin leita til meistara og biðja um aðstoð.

Hver og ein sál er einstök. Hvers vegna? Vegna þess að hver sál hefur kosið að endurfæðast til að vinna sig í gegnum lexíur og verkefni sem hún þarf að leysa. Sumir koma til baka með ókláraðar lexíur en velja að fara EKKI aftur til jarðarinnar. Hvað gerist þá hjá þessum sálum? Það eru margar víddir í okkar heimi, ólíkar leiðir til að ná meistarastigi, ef svo má að orði komast. Þegar þið komið aftur “heim” og hafið lært það sem þið þurftuð að læra, og hafið tekist á við þau vandamál sem ykkur var ætlað, þá hækkið þið í tíðni og vídd. Þessi hækkun gefur ykkur aðgang að öðrum víddum, hærri fræðslu og samræðum við meistara.

Ef þið komið aftur “heim” og hafið ekkert lært eða hafið ekki tekist á við vandamál ykkar, getið þið ekki fengið aðgang að þessum hærri víddum og hafið takmarkaða getu til að ferðast á milli þeirra. Það gæti virst ósanngjarnt, en hvernig getur maður skilið æðri þekkingu ef maður hefur ekki náð hærra vitundarstigi? Þið getið ekki skilið æðri fræðslu ef þið eruð enn föst í lægri orkutíðni.

Þeir sem uppgötva að þeir hafa ekkert lært, upplifa sorg og jafnvel áfall þegar þeir koma heim. Þetta er ekki auðvelt, og það er sárt að horfa upp á. Oft vilja þessar sálir snúa aftur til jarðar eins fljótt og hægt er til að fá aðra tilraun. Hinn guðlegi andi hefur gefið frjálsan vilja, og þar með ekki hægt að stjórna sálum. Þær þurfa að hafa val, en því miður getur það val hindrað þroska sálarinnar. Þetta, ásamt sjálfi mannkynsins, getur haldið sálinni fastri í endurfæðingahringrásinni. Að lokum kemur sálin til meistaranna og biður um aðstoð, og þá stígum við inn til að hjálpa ykkur að komast áfram á hærra vitundarstig.

Þegar við grípum inn í ferlið verður vegferðin oft erfiðari, því við skynjum ekki tilfinningar og erum ekki undir áhrifum tilfinningalíkamans. Markmið okkar er að hjálpa ykkur að ná áfram, og þið fáið að velja hvernig þið takið þau skref, en við tryggjum að þið haldið áfram. Það er mun betra að halda áfram með lærdóminn í lífinu heldur en að forðast hann eða horfa fram hjá því sem þið þurfið að læra. Að lokum mun sálin ekki þurfa að endurfæðast, og þegar náminu á jörðinni er lokið hefst andlega námið í okkar heimi. Þegar þið náið þeim áfanga, gefur það meira frelsi og námið verður gleði. Í andlega heiminum eruð þið laus undan sjálfinu, sem oft hindrar ykkur með sínum lygum, afsökunum, ótta, efasemdum og öðrum tilfinningum. Þar eruð þið sannarlega frjáls!

 

 

Efst á síðu

Kennsla Maitreya

Heim

 

Beint á síðu http://maitreya.co

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur