|  |   Þið eruð aldrei ein!
 14.  september 2003
 
 Skilaboð frá Maitreya -miðlað af Margaret McElroy
 
 Er ykkur ljóst að þið eruð  aldrei ein? Frá fæðingu hafið þið fjölda sálna í andlega  heiminum til þess að líta eftir ykkur og veita ykkur aðstoð í daglega lífinu. Þessar  sálir hafa samskipti við ykkur í gegnum innsæi ykkar, en þið heyrið ekki alltaf í þeim vegna þess að þið efist um innsæið. Hversu oft hafið þið heyrt rödd, eða hafið  haft eitthvað á tilfinningunni og fylgið því ekki eftir, sem síðan hefur reynst vera rétt? Ég veit að margir kannast við þetta sem lesa þetta  fréttabréf. Það er ekki bara leiðbeinandi sem  fylgir ykkur frá fæðingu, þið hafið líka margar aðrar sálir sem hjálpa ykkur í lífinu. Margir þekkja þessar sálir sem engla og þær eru englar, þær eru  mjög sérstakar sálir sem velja að vinna með ykkur. Þetta getur verið mjög erfitt fyrir þær, vegna neikvæðni og neikvæðrar orku, verða þær oft að  draga sig í hlé og hvílast, jarðarorka er mjög erfið fyrir þær.
 
 Þið eruð aldrei ein, ALDREI! Ef  þið gætuð bara treyst tilfinningu ykkar og vitneskju þá væruð þið fær um að vinna  miklu betur með þeim. Sjálfið er þó stöðugt að vinna í því að rugla ykkur, það  mun segja ykkur að þetta sé ímyndun í ykkur, eða segja að það sé ekki mögulegt að svona  hlutir geti gerst. Maður getur oft óttast innsæi sitt í þeim tilfellum sem  maður fær skilaboð um dauða eða veikindi. Þið þurfið bara að segja leiðbeinanda  ykkar að þið viljið ekki svona skilaboð  og þið munið ekki fá þau aftur. Reynið að hlusta á innri rödd, óttist hana  ekki. Segið leiðbeinanda ykkar að þið viljið fá skýrari skilaboð og  að þið viljið hlusta betur og þið munið verða  undrandi á því sem þið fáið.
 
 Maitreya Kennsla Maitreya Efst á síðu Heim    Beint á síðu http://maitreya.co © Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |  |