Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Uppáþrengjandi skoðanir

 

6. júlí 2003

Skilaboð frá Maitreya - miðlað af Margaret McElroy

Ein af þeim spurningum sem ég fæ oft snýr að þeim sálum sem, í gegnum trúarbrögð eða á annan hátt, reyna að þröngva trú sinni upp á aðra. Af einhverjum ástæðum telja þær sig þurfa að innræta þér sínar hugmyndir svo þú hugsir eins og þær.

Hver og einn ber sitt eigið sálarmót. Það er einstakt engar tvær sálir bera sama mót. Hugsaðu þér allar sálirnar sem lifa á jörðinni og hvernig engar tvær eru eins. Hve máttugur er ekki kraftur hins guðlega anda sem margir kalla Guð.

Hvert og eitt ykkar ber sinn einstaka sálarhljóm og því fylgir frelsi til að hafa eigin vilja yfir hugsunum sínum og hugmyndum.

Það er mikilvægt að þú fylgir eigin tilfinningu þegar kemur að lífi þínu. Þú getur, ef þú vilt, leitað til stjörnuspekings til að fá aðstoð við að skoða möguleika og valkosti. En jafnvel þótt sú sál geti leiðbeint þér, getur hún aldrei sagt þér hvað þú átt að gera. Sú ákvörðun verður alltaf að vera þín eigin.

Trú þín verður að vera þín eigin.

Margir óttast að taka ákvarðanir af því að þeir eru hræddir við að gera mistök. En jafnvel mistök getur orðið dýrmæt reynsla og lærdómur.

Engin sál hefur rétt til að dæma um hvað sé rétt eða rangt. Aðeins sú orka sem kölluð er Guð gæti gert það og jafnvel þá dæmir Guð ekki. Guð sýnir aðeins af mildi hvar þú gætir hafa farið ranga leið eða tekið ákvörðun sem reyndist ekki sú rétta.

Ef einhver segir þér að þú verðir að verða grænmetisæta, hætta ákveðnum venjum, breyta því hvernig þú lifir, breyta skoðunum þínum eða trú þá er viðkomandi að leggja dóm á þig.

Hver sál hefur sína eigin lexíu að læra og sína eigin lífsreynslu. Hver sál lærir á þann hátt sem hún hefur sjálf valið í sinni lífsáætlun. Ekkert getur breytt því.

Vertu því sátt/ur við þína sérstöðu og stolt/ur af því að vera öðruvísi. Fylgdu ekki hjörðinni heldur vertu sú sál sem þorir að standa út af fyrir sig og njóta frelsis til að hugsa og tjá sig á sinn eigin hátt.

Maitreya.

Efst á síðu

Kennsla Maitreya

Heim

 

Beint á síðu http://maitreya.co

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur