Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Uppljómun

 

28. maí  2009

Skilaboð frá Maitreya - miðlað af Margaret McElroy

Í mörg ár hefur verið talað um upprisu jarðarinnar. Margir hafa sagt að geimverur muni koma og fara með góðu sálirnar í burtu. Aðrir hafa predikað  að aðeins ákveðnir kirkjuhópar muni upprísa þegar Krists sálin snýr aftur. Sannleikurinn er sá að allt mannkyn hefur tækifæri á upprisu, en margar sálir munu ekki gera það vegna þess að þær vilja ekki hækka tíðnina sína.

Fótónubelta orkan, Kristsandinn hjálpar til við að hækka tíðni þeirra sem eru á þessari plánetu. Margar sálir munu ekki ráða við hærri orku nema þær hafi hreinsað burt blokkeringar og náð stjórn á efnis- tilfinninga- hugar- og andlegu líkömunum. Milljónir sálna á þessari jarðar plánetu hafa verið fastar og komið aftur endurfæðingu eftir endurfæðingu ófærar um að yfirgefa þessa tíðni vegna þekkingarleysis um orkustöðvar og tilgang þeirra. Þær skortir þekkingu á fyrri lífa minningum og halda sér í myrkri og ná einungis nirvana, eða friði á milli lífa. Þær þurfa að snúa aftur og aftur, endurfæðingu eftir endurfæðingu til að reyna að hreinsa í burtu blokkeringar. Kristssálin kom í gegnum Jesús fyrir 2000 árum, hann var miðill og heilari.  Hann ummyndaðist (transfigured)  eins og margir miðlar gera í dag og hann kom þá með fótónubelta orkuna með sér. Í dag er það gert aftur til að hjálpa mannkyninu að hækka tíðnina. Því miður hefur orðum kennarans Jesús verið breytt út yfir upprunalega merkingu þeirra. Margir aðrir spámenn hafa einnig talað og fært inn nýja orku og skilaboð frá meistaranum til að aðstoða mannkynið, en þau hafa öll verið ranglega túlkuð.

Skilaboðin eru gefin aftur í þeirri von að mannkynið hlusti. Fyrir þá sem hafa leitað sér andlegrar aðstoðar, sem eru án neikvæðs ástands og hugsunar. Fyrir þá sem elska náunga sinn, þrátt fyrir mistök þeirra og fyrir þá sem fylgja ljósinu og dæma ekki aðra, þeir munu loksins yfirgefa þessa jarðar plánetu og þurfa aldrei að snúa aftur. Þau munu færast yfir í hærri tíðni, fjarri neikvæðninni og þau verða eitt með æðstu veru eða Guði. Þetta mun gerast fyrir allar sálir sem eru í þessari endurfæðingu og hafa hækkað tíðnina sína. Þeir sem hækka ekki tíðnina sína og sinna ekki skilaboðum meistaranna, munu verða bundnir jörðinni enn og aftur. Fæðast aftur og aftur í eitt þúsund ár á jörðinni í viðbót, þar til önnur orka kemur til með að umbreyta og aðstoða þá sem vilja fara.

Margir þeirra sem yfirgefa jörðina að þessu sinni eru tengdir við geimbræðralagið í mörgum endurfæðingum fortíðar. Þeir komu til að sá fræjum og kenna. En þegar þeir blönduðu orku sinni við mannkynið á jörðinni, sameinaðist hið hreinasta og æðsta, sjálfum frumstæða mannsins. Dýrahluti mannkyns og síðari afkvæmi voru bundin við jörðina. Líf eftir líf, að reyna að losa sig við sjálfið. Í örvæntingu sinni að reyna að sameinast hinu æðra sjálfi en geta það ekki, vegna þess að tíðni plánetunnar var ekki nógu há.

Það er nú að breytast og mannkynið hefur tækifæri til að breytast. Myrkraöflin safnast einnig saman og bíða þess að stökkva á þá sem vilja breytast. Margir munu láta undan freistingum og fara aftur á bak, en margir munu halda áfram, til upprisu og sameiningar við Guð guðlegu sálarinnar, yfirgefa jörðina að eilífu. Það er svo lítill tími og margar sálir að hafa samband við. Mörg orð hafa þegar verið töluð og skrifuð en samt grefur mannkynið höfðinu í sandinn. Margir miðlar hafa verið sendir og enn er ekki hlustað á þá vegna þess að mannkynið er farið að elska myrkrið og hefur gleymt því hvernig ljósið er. Það er ekki um að syngja sálma og fara með bænir. Það er heldur ekki krafan um að fylgja einum tilteknum sértrúarsöfnuði eða gera hlutina á ákveðinn hátt. Það er um það að vera heiðarlegur við sjálfan sig, mæta sínum eigin neikvæðu eða dökkum hliðum, sjá gott í hverri sál, dæma aldrei aðra. Það er sá friður sem er ofar öllum skilningi.

Leyfið ykkur að vera leidd að ljósinu, látið ljósið skína í gegn og umbunin verður sá friður. Látið leiða ykkur í burtu frá jörðinni til að rísa upp í hærri tíðni og til einingar við það sem er ofar öllu sem þið hafið nokkru sinni kynnst.  Það getur byrjað núna. Þið getið upplifað þann frið. Þið þurfið bara að snúa ykkur að ljósinu, vera laus við alla gagnrýni og að dæma aðra, laus við tilfinninga líkamann, skilja andleg lögmál og fara eftir þeim.  Elskið náungann af öllu hjarta og verið fús að vaxa andlega. Það er ekki auðvelt að opna þessar dyr, við höfum sent marga kennara til að hjálpa ykkur, þeir eru allstaðar og ef þið biðjið um það munið þið verða leidd til þeirra. Það þýðir að horfast í augu við sjálfið og sleppa því. Þá munið þið ná upprisu í hærri tíðni.

 

 

Maitreya.

 

Efst á síðu

Kennsla Maitreya

Heim

Beint á síðu http://maitreya.co

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur